Lokahóf GSÍ verður á Broadway 19. september 2009
 

Allir kylfingar á landinu, jafnt áhugafólk sem atvinnukylfingar eru velkomnir á lokahóf GSÍ á Broadway 19. september 2009

  • Glæsilegur 4 rétta kvöldverður
  • Verðlaunafhending
  • Fjölbreytt skemmtiatriði
  • Danleikur fram á nótt


Michael Jackson tribute á Broadway í vetur

(smella á mynd fyrir nánari upplýsingar)

Michael Jackson tónlistarsýning
Broadway verður með “tribute” Michael Jackson söng- og tónlistarsýningu á komandi vetri.  Frumsýning verður í október 2009. Í sýningunni verður farið í gegnum feril Jackson í “Jackson five” og sólóferil hans. Þetta verða frábær kvöld þar sem hægt verður að njóta góðra veitinga og hlusta á tónlist poppgoðsins Michael Jackson.

Ókrýndur konungur poppsins
Michael Joseph Jackson (fæddur 29. ágúst 1958 og lést 25. Júní 2009) sem er ókrýndur konungur popptónlistarinnar var bandarískur listamaður.

Einn tekjuhæsti tónlistamaður allra tíma
Jackson sem varð einn tekjuhæsti listamaður allra tíma hefur með framlagi sínu til tónlistar og dans í heiminum ásamt stórbrotnum opinberum lífsferli lagt mikið til poppheimsins í áratugi.

Einstakur listamaður í sögunni
Tvöföld innganga hans í “Rock and Roll Hall of Fame”,  mörg “Guinness” heimsmet s.s. "Most Successful Entertainer of All Time", 13 “Grammy” verðlaun, 13 lög í fyrsta sæti og sala á meira en 750 milljónum plötum hefur gert þennan stórkostlega listamann einstakan í sinni röð.  Platan hans Thriller sem kom út árið 1982 er mest selda plata allra tíma og fjórar aðrar, Off the Wall (1979),  Bad (1987), Dangerous (1991) og History (1995) eru meðal þeirra mest seldu í heiminum.

Gunnar Þórðarson er tónlistarstjóri
Tónlistarstjóri sýningarinnar er Gunnar Þórðarson og Egill Eðvarðsson er leikstjóri.

Alan Jones, Edgar Smári, Arnar Jónsson og María Ólafsdóttir syngja
Alan Jones sem er best þekktur hér á landi fyrir þátttöku í Xfaktor ásamt Edgari Smára og Arnari Jónssyni úr Luxor og María Ólafsdóttir sjá um að syngja lög Michael Jackson.

Landslið hljóðfæraleikara
Í sýningunn spila frábærir tónlistarmenn sem mætti kalla landslið hljóðfæraleikara.

Glæsilegur hópur dansara
Í sýningunn dansar stór hópur dansara sem sérstaklega var settur saman. Mikið verður lagt í alla umgjörð, útlit og dans í þessari sýningu, enda hefur Michael Jackson lagt sterkan grunn til þess umhverfis í gegnum áratugi.

Matseðill á sýningum í október
- Sherrýbætt villisveppasúpa með rjómatopp
- Lambavöðvi smurður balsamic sinnepi og kryddjurtum með lambasoðsgljáa
- Mangoís og ristaður ananas

Kvöldverður, sýning og dansleikur
   10. október - 3ja rétta kvöldverður, sýning og dansleikur
   24. október - 3ja rétta kvöldverður, sýning og dansleikur
  6. nóvember - 3ja rétta kvöldverður, sýning og dansleikur
13. nóvember - 3ja rétta kvöldverður, sýning og dansleikur

Jólahlaðborð, sýning og dansleikur
 20. nóvember - Jólahlaðborð, sýning og dansleikur
 21. nóvember - Jólahlaðborð, sýning og dansleikur
 28. nóvember - Jólahlaðborð, sýning og dansleikur
  4. desember - Jólahlaðborð, sýning og dansleikur
  5. desember - Jólahlaðborð, sýning og dansleikur
11. desember - Jólahlaðborð, sýning og dansleikur
12. desember - Jólahlaðborð, sýning og dansleikur

 



Mynd að salnum
 



1 2 Næsta frétt 
Hvort viltu íslenskan eða erlendan söngkabarett á Broadway
Íslenskan
Erlendan
 Broadway á myspace
 Samtök ferðaþjónustunnar
 Ungfrú Ísland
 Unnur Birna Ungfrú heimur
 Myndir Nína og Geiri
 Greifarnir
 Félag íslenskra hljómli...
 Viðburðastjórnun - Skem...
Broadway • Ármúla 9 • 108 Reykjavík • Sími: +354-533-1100 • Fax: +354-533-1110 • broadway@broadway.is  Hönnun DesignEuropa